Samstarfsleit

 

Leitargagnagrunnar

Upplýsingaþjónustur menningaráætlunar EU ( Cultural Contact Points) hafa komið sér upp gagnagrunni til að auðvelda leit að samstarfsaðilum og samstarfsverkefnum. Þar er einnig hægt að skrá eigin stofnun eða verkefni sem eru að leita að samstarfsaðilum. 
 
Eftirtalin lönd hafa samstarfsleitargagnagrunn: Austurríki Bretland  Ítalía   Króatía  Litháen   Malta  Slóvenía   Spánn     Þar er hægt að skoða hvaða verkefni hafa verið skráð og einnig að skrá eigin verkefni. 

 

Menningaráætlunin (Culture programme) er einnig sjálf með gagnagrunn til að auðvelda leit að samstarfsaðilum.




European Cultural Foundation veitir ýmsa styrki og hefur mikil áhrif á menningarmál í Evrópu. Inn á heimasíðu European Cultural Foundation http://www.eurocult.org/er einnig að finna hlekki yfir á mörg af helstu tengslanetum Evrópu og yfir á síður með ýmsum áhugaverðum upplýsingum um sjóði, menningarmál og menningarpólitík. 

Sem dæmi um gott tengslanet má benda á IETM sem stendur fyrir Informal European Theatre Meeting og er fyrir fyrirtæki, stofnanir, samtök og einstaklinga sem starfa að sviðslistum í víðum skilningi þess orðs. Nokkrir íslenskir meðlimir eru í þessu tengslaneti enda héldu þeir einn af sínum fundum hér á landi, með styrk frá Culture 2000. IETM heldur fundi tvisvar á ári þar sem fagfólk hittist og ýmsir viðburðir, vinnubúðir, fyrilestrar o.fl. er í boði. Þetta er afar góður vettvangur fyrir fólk sem starfar að sviðslistum til að kynnast "kollegum" í öðrum löndum með samstarf í huga og eins til að fá innblástur. 

IETM hefur í samstarfi við fleiri komið upp mjög góðum gagnagrunni http://www.on-the-move.org/sem er vefslóð með upplýsingum um ýmsa alþjóðlega starfsemi og viðburði, möguleika á samstarfi og vinnu í öðrum löndum, ýmis verkefni og fjármögnunarsjóði á sviði leiklistar, dans, tónlistar og annarra sviðslista (performing arts).  

Þá má einnig nefna NEMO - the Network of European Museum Organisation http://www.ne-mo.org/  Samtökin hafa komið upp samstarfsleitargagnagrunni og er slóðin http://www.ne-mo.org/partner/